Veislur að baki í bili

Þá er velheppnaðri útskriftarveislu Einars lokið og frúin fær frí frá veisluhöldum í bili. Tók mér heilan dag í hvíld eftir herlegheitin sem var mjög notalegt í vonda veðrinu, að liggja undir sæng og lesa ummmm mín hugmynd um gæðastund.
En ég lofaði undrasúpu sem er í raun grunnur af flestum súpum sem ég geri, finnst pakkasúpur ekki spennandi. Þessi er líka þannig að það má breyta henni í ítalska, kínverska, indverska og jafnvel íslenska súpu bara eftir því hvað maður á í ísskápnum eða langar í.

Undrasúpan

Dós af niðursoðnum tómötum (helst söxuðum)
góðan kraft t.d. frá Sollu ca. 1.msk
grænmeti s.s. sætar kartöflur, hvítkál, paprika, laukur..o.s.fr.
salt og pipar (var að uppgvötva Himalaya salt, geðveikt gott..)
lítil dós af tómatpúrru

Þetta kunna auðvita allir, ég veit það en...svo er að setja krydd sem breytir súpunni og fer þá súpan með okkur um víða veröld..

Gott karrý eða tandoori og súpan verður indversk
ítalst krydd t.d. blanda frá Pottagöldrum og hún verður ítölsk
kóriander, cumin og chili og hún verður marókkósk (rétt stafað...?)

svo er auðvita gott að setja kjöt, fisk eða pasta/hrisgrjón/bygg í súpuna og hún verður mjög matarmikil

Það sem ég er farin að gera núna er ég bý mér til alvöru soð. Þegar ég t.d. elda læri þá brýt ég beinin í tvennt (þegar við erum búin að borða..:)) og sýð
í klst.allavega með svörtum piparkornum og salti/krafti og ef ég á grænmeti sem er alveg að fara í ruslið fer það með. Svo sía ég það og nota sem grunn í súpur. Frysti ef ég er ekki að fara að nota strax. Í dag er ég t.d. að fara að gera súpu úr kalkúnasoði sem ég frysti um jólin.
Kjöt og fisk soð eru mjög heilsusamleg fyrir fólk með t.d. candida sýkingu.

Ég er mikið fyrir einfaldar uppskriftir og vill frekar bæta í e-n frá eigin hendi svo uppskriftir sem ég deili verða fyrst og fremst einfaldar.

Verði ykkur af góðu og ef þið viljið uppskriftir af einhverju sérstöku eins og heilsunammi, þá verðið þið að láta mig vita, þið þrjár sem lesið þetta he,he..

kveð í bili


Tölvan mín sprakk...eða þannig

Hæ vá hvað ég var glöð að sjá viðbrögð við blogginu mínu! Takk elsku vinkonur og frænkan mín. Nú tölvan mín "sprakk" og ég hélt að hún væri endanlega búin á því en viti menn Alexander minn kom henni aftur í gagnið svo hér er ég mætt. Ætla samt að kaupa mér nýja tölvu í næstu viku með aðstoð sérlegs sérfræðings míns Sindra sem ætlar með mömmu sinni í Kísildal, say no more...

Ok í dag ætla ég að gefa ykkur uppskrift af uppáhalda bollum okkar hér í fjölskyldunni og þótt víðar væri leitað. Hef gert þessar bollur fyrir flestar veislur í gegnum árin og mjög oft verið beðin um uppskrift af þeim. Þær flokkast kannski ekki sem heilsubollur nema kannski geð-heilsubollur kannski..æðislegar volgar með ostum og sultum.

Bollur fyrir geðheilsuna.

1.kg. Hveiti (má setja spelt, heilhveiti o.s.fr.)
250 gr. smjör (eða aðra fitu, smjör er samt best fyrir bragðið)
3.msk.þurrger
2.msk.sykur (ég er farin að nota hunang, Akaciu frá Sollu)
1.tsk. salt
1.bolli volgt vatn
kúmen

Öllum þurrefnum bl. saman. Gerið leyst upp í volgu vantinu, smjör brætt og vatn og smjör og mjólk hrært út í þurrefnin og hnoðið. Bætið við hveiti eða vatni eftir þörfum, ef deigið er of blautt þá setja meira hveiti eða of þurrt þá meira vatn. Ger bakstur er samt alltaf betri frekar blautur. Látið hefa sig á volgum stað á meðan plöturnar eru gerðar tilbúnar ca.10-15 mín.
Stundum hef ég penslað bollurnar með egg/mjólk hræru og sett fræ ofan á, bakaið þær svo við 200°þangað til ykkur sýnist þær vera bakaðar.
Ef þið ætlið ekki að borða þær strax þá skulið þið frysta þær þar sem þessar eru bestar volgar. Þá bara hitið þið bollurnar beint úr frystinum og leggið á borð og þær klárast strax þannig að tryggið ykkur a.m.k. eina!!

Verði ykkur að góðu eða eins og Einar minn segir Bon apetito!
Næst kem ég með uppskrift af Undrasúpu (góðar með bollunum...) sem er sérlega grennandi, maður grennist bara við að búa hana til! í alvöru..

Þá er best að snúa sér að útskriftarveislunni hans Einars.
Ciao.


Tímabært að rísa út rekkju

Mér finnst að flensan sé að mestu farin, allavega ætla ég að fara að rísa úr rekkju. Ekki seinna vænna þar sem við Einar minn erum að fara að undirbúa stúdentsveisluna sem verður á sunnudaginn. Við Einar eum komin í heilsugírinn þannig að við ætlum að sleppa öllu sykursætu og hafa þetta frekar hollar og góðar veitingar. Ég er ánægð með strákinn minn hann er orðin heilsuþenkjandi eins og mamman :) en hann fer skrefinu lengra og fær ekki móral þó hann fái sér eitthvað sem flokkast ekki undir heilsufæði, tek hann mér til fyrirmyndar nýstúdentinn minn.
Annars var ég að tala við vel upplýsta frænku mína og sagði henni stolt að ég væri farin að blogga, reyndar læsi það enginn nema kannski strákarnir mínir en samt..."það eru allir hættir að blogga" sagði hún, "en ef þú ferð að setja inn eitthvað af þessu heilsu uppskriftum þínum færðu kannski einhverja lesningu, ég kíki allavega". Hmmm ok skil vel að fólk nenni ekki að lesa um venjulegt líf Hafnfirskrar húsmóður og 4 barna móður með meiru svo ég lagðist undir feld, var eiginlega undir honum, en allavega ákvað að taka mark á þessari yndilsegu frænku minni og setja inn heilsuuppskriftir. Sem ég er að gera, hef gert og ætla að prófa mig áfram með á næstunni. Kannski koma líka einhverjar línur líka um daginn og veginn...en hér kemur fyrsta uppskriftin að því sem ég fæ með í morgunmat og virkar MJÖG vel á latan ristil og gefur mér allavega orku fram á hádegi.

AB-mjólk
2.msk möluð hörfræ (set í kaffi-grinderinn, hægt að kaupa malaðar í FK)
möndlumix (möndlur, sólblómafræ, pecanhnetur, graskersfræ, og kókosflögur allt ristað létt á þurri pönnu)
smá hunang (ég nota Akaciu hunang frá Sollu)

á sunnudögum eða bara þegar mér langar í...
sía AB mjólkina í gegnum kaffifilter (verður eins og skyr)
set bláber eða önnur ber, helst fersk
rjómi..ummm hrikalega gott!

jæja Jenný mín eins gott að þú kommentir á þetta!! he,he..sæl að sinni


Flensan mætt

Ég sem hélt að ég væri bara svona þreytt. En er komin með flensuna sem hefur herjað á alla fjölskyldumeðlimi, hélt að ég, töffarinn, myndi sleppa! Þá er ekki annað að gera en að drekka engiferte með sítrónu, borða hvítlauk og cayenne pipar og reka bakteríurnar út. Mér finnst flestir fá flensu um þetta leyti árs og hef mína kenningu um það, eftir að hafa lesið hundruð heilsubóka, að það sé s.s. jólasukk fæði og stress. Líkaminn verður bara uppgefinn. Allavega held ég þetta eigi við um mig því auðvita missi ég mig í allt jólagóðgætið (lesa:nammið) afþví ég ætla nefnilega alltaf að hefja nýtt heilsusamlegra ár í kjölfarið. Alveg merkilegt hvernig ég fer alltaf að því að plata sjálfa mig, en ég sé ekki eftir neinu, naut hvers konfektmola og stend mína plikt í veikindunum. Ég get þá haldið áfram að vera með tölvuna upp í rúmi og látið karlana mína færa mér te með reglulegu millibili...ummm

Að morgni 3.janúar

Ég vaknaði óvenju snemma í morgun miðað við það að vera barnlaus. Sindri minn, elsti sonurinn er með tvíburana mína hjá sér. Þeir elska að fá að gista hjá Sindra stóra bróður sem býr í Kópavogi með kærustunni sinni Erlu, tveim köttum þeim Rúrik og Lottu, og síðast en ekki síst hundinum Spock. Strákarnir elska Spock og hann elskar þá alveg jafn mikið, s.s. frábært samband, við hin í fjölskyldunni eigum ekki sjens í athygli Spocks þegar tvibbarnir eru annars vegar.
Hef líka komist að því að það er frábært að vera með fartölvuna upp í rúmi ég hef ekki leyft mér það hingað til en var óvenju þreytt eftir að vinna öll áramótin og hér sit ég með tölvuna upp í rúmi og góðan kaffibolla og blogga eins og mér sé borgað fyrir það! Þetta er ljúft og ég ætla að njóta þess meðan það endist, vera í flæðinu!

Loksins komin með bloggsíðu

Mér finnst það passa vel að hefja þetta ár á því að láta af því verða að stofna bloggsíðu. Mig hefur langað til þess lengi, ég veit í raun ekki afhverju, kannski til að deila með öðrum hvernig ég fer í gegnum dagana ef einhver getur grætt eitthvað á því, ég græði allavega oft á því að lesa annara manna/kvenna blogg. Kannski er einhver athyglissýki í gangi hjá mér eða forvitni um hvernig og hvort einhver les blogg annara, aðrir en vinir og vandamenn viðkomandi bloggara.

NÝTT ÁR 2012

Um hver einustu áramót frá því ég komst á fullorðins aldur hef ég staðið á stokk og strengt áramótaheit. Sum hafa gengið eftir, eins og þegar ég ákvað að hætta að reykja (byrjaði þó aftur 10 árum seinna..), en flest hafa endað í febrúar ef ekki fyrr (2.jan t.d.). Í ár ákvað ég þessvegna að strengja ekki áramótaheit, sérstaklega þar sem ég hef verið með sama áramótaheitið sl.15-20 ár, hætta að neyta sykurs, en alltaf fallið aftur hvernig sem ég hef reynt og hvaða aðferðum sem ég hef beitt. Ég hef prófað flestar aðferðir sem mælt er með við sykurfíkn; Atkins, Candida matarkúr, föstur, OA og nálastungur svo eitthvað sé nefnt en alltaf endað á reit eitt aftur (lesa:fallið). Þannig að í ár ætla ég bara að taka mér borgastjóra Reykjavíkur mér til fyrirmyndar og vera bara í flæðinu og sjá hvað gerist. Kannski er blogg bara málið!
Sæl að sinni.

p.s. nennti ekki að setja púkann inn svo afsakið stafsetningarvillur.


Um bloggið

Kristín Ásgeirsdóttir

Höfundur

Kristín Ásgeirsdóttir
Kristín Ásgeirsdóttir
Móðir 4 drengja, eiginkona, eigandi 2 hunda og þroskaþjálfi
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 202

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband